Hvar á að byrja með gervigreind í rekstri — og hvað má sjálfvirknivæða?

Reykjavík — Iceland

Hvar á að byrja með gervigreind í rekstri — og hvað má sjálfvirknivæða?

When

11/17/2026, 5:00:00 PM

Where

Arctell Sandvík, Reykjavík, Reykjavíkurborg, IS

About

Hvaða ferlar í rekstri henta gervigreind, og hverjir ekki? Hvað má vélin gera sjálf, hvað þarf stjórnandi að samþykkja og hvar liggur ábyrgðin? Hvernig nýtum við gögnin sem liggja þegar í bókhaldinu, kerfunum og markaðnum, og hvað gerum við þegar þau reynast ekki nógu góð? Og hvar er skynsamlegast að stíga fyrsta skrefið? Bjarni Ingimar Auðarson hjá ExOS kveikir samtalið. ExOS byggir gervigreindarumboðsmenn sem sitja ofan á fjárhags- og rekstrarkerfum fyrirtækja, greina gögn og framkvæma aðgerðir innan þeirra marka sem fyrirtækið setur. Bjarni segir frá því hvernig það virkar í raun: hvað fyrirtæki eru að láta gervigreind gera, hvaða ákvarðanir þau halda hjá fólki, og hvað hefur komið á óvart. Svo tekur salurinn við. Við fáum til okkar nokkra sérfræðinga í gervigreind í rekstri sem svara vangaveltum og spurningum. Komdu með spurningarnar þínar, ferlana sem þig langar að létta á, reynslusögurnar og kannski eitthvað sem þú vilt að gangi betur. Markmiðið er að hver og einn fari heim með hugmynd um hvar væri best að byrja hjá sér eða halda áfram næst. Fundurinn fer fram undir Chatham House reglunni: það sem sagt er má nýta, hver sagði það fer ekki lengra. Húsið opnar kl. 16:30 með kaffi, dagskráin sjálf er frá 17:00 til 19:00. Arctell Sandvík, Neshaga 16. Fundurinn er ætlaður aðilum klasans og skráning er nauðsynleg, sjá hlekk í viðburði. Þetta er annar fundur gervigreindarhóps Reykjavík Fintech. Næsti fundur er í febrúar og snýst um öryggi og gervigreind.

Open original event link